Taktu stjórnina í samtalinu
útgefið

Það kemur endrum og eins upp sú stund þegar fólk lendir í viðtali. Stundum hefur það verið skipulagt fyrir löngu. Í öðrum tilvikum skellur það óvænt á. En alltaf þarf að svara. 

Þetta getur verið rólyndisspjall í stúdíói eða erfið yfirheyrsla í síma. Stundum maður á mann.

En hvernig á að svara spurningum frá fjölmiðlafólki?

Heita kartaflan

Heitasta fréttin í fjölmiðlum á dögunum var bréf sem blaðakonurnar og systurnar Malín Brand og Hlín Einarsdóttir sendu á heimili forsætisráðherra. Í bréfinu munu þær hafa krafist þess að fá greiddar nokkrar milljónir króna ellegar myndu þær gera opinber gögn sem þær sögðu sýna fram á að forsætisráðherra hafi hlutast til um kaup fjárfesta á hlut í DV. 

Netmiðillinn Stundin fjallaði um málið og sagði blaðamönnum DV brugðið. Í frétt Stundarinnar var haft eftir Eggerti Skúlasyni, öðrum ritstjóra DV, að hann telji gögn systranna ekki tengjast DV. 

Eggert sagði: 

„Ég ætla að byrja á að segja að það er stuð á DV. Þetta er stór fréttadagur. Engum er brugðið heldur eru allir í því að fjalla um þetta risastóra fréttamál. Við erum að fjalla um þetta. Þú veist hvernig það er í blaðamennsku að það eru skemmtilegustu dagarnir í vinnunni þegar það eru alvöru fréttamál í gangi. Sjálfstæð, öflug ritstjórn er á fleygi ferð.“ 

Ekki svara beint

Spurningar eru án undantekninga leiðandi og krefjast svars. En leiðandi svörun við leiðandi spurningu krefst mikillar yfirvegunar og sköpunar. Þess vegna er ekki gott að svara út í hött.

Eggert laut ekki fyrir fyrirframgefnum lögmálum. Hann tók stjórnina af blaðamanni Stundarinnar án þess að svara út í hött. Í hugum lesenda situr eftir, að þetta var stór fréttadagur á DV. Allir voru búnir að gleyma upphaflega málinu, uppnámi blaðamanna. 

Lærdómurinn. Forðastu beina svörun. 

Stundum getur verið gott að svara spurningu beint. Það þarf að skoða spurningarnar eða hlusta vel og meta markmið svörunar. 

Ertu með spurningu?

Almannatenglar Cohn & Wolfe eru sérfræðingar í boðmiðlun. 

Fyrirtæki leita til almannatengla til að auka skýrleika samskipta sinna frá A til B, hvort heldur eru spurningar eða svör. 

Hvert er þitt svar?

Facebook
Twitter
LinkedIn

Nýjast á Úlfaslóð

Byggjum borg tvö – Sel­foss eða Akur­eyri fyrst?

Ekkert er fegurra en hugmynd hvers tími er komin: Akureyrarborg eða? Tilgangur hugmyndarinnar um Akureyrarborg er að draga vald norður og styrkja umboð Akureyringa til að nota það. Önnur borg skapar vonandi valdajafnvægi í landinu sem eykur velferð landsbyggðarinnar. Það verður erfitt að ganga framhjá borg tvö. Forsendurnar liggja í því sem landshlutinn villhafa en

smelltu og lestu »

Geta gert sáttmála um samtalið

Samfélagið allt virðist loga í illdeilum og geta átökin borist inn á vinnustaðinn Það getur snúist í höndunum á fyrirtækjum að taka afstöðu í hitamálum Grundvallarreglur geta bætt samskiptin Greina má merki um vaxandi spennu í samfélaginu og virðast ótal deilumál hafa náð að skipta landsmönnum í andstæðar fylkingar. Nú síðast hafa átökin á milli

smelltu og lestu »
setur stjórnendur í mjög erfiða stöðu

Setur stjórnendur í mjög erfiða stöðu

Ef upp kemst um óviðeigandi hegðun eða brot starfsmanns gæti þurft aðstoð óháðra sérfræðinga Til að finna farsæla lausn þarf heiðarlegt samtal að geta átt sér stað Engin tvö tilvik eru eins Því miður líður varla sú vika að ekki berast fréttir af óviðeigandi hegðun og jafnvel kynferðisbrotum einstaklinga sem ýmist eru í áhrifastöðum í

smelltu og lestu »