Vörumerki Corona-bjórsins frá Mexíkó er efst á lista yfir verðmætustu vörumerki Suður-Ameríku í ár, á vörumerkjalistanum BrandZ . Þetta er annað árið í röð sem vörumerki Corona situr í toppsætinu.
Athygli vekur að á BrandZ-listanum yfir 10 verðmætustu vörumerkin eru fimm í matvæla- og drykkjavörugeiranum í Suður-Ameríku. Fjögur þeirra eru í Mexíkó en en þrjú í Brasilíu. Eitt fyrirtækjanna, farsímafyrirtækið Telcel í Mexíkó, er í eigu América Móvil, fyrirtækis Helu Slim, eins ríkasta manns í heimi.
Kláraðist á Íslandi
Corona-bjórinn hefur verið vinsæll hér á landi og á hann sína aðdáendur. Hann var hins vegar ófáanlegur í verslunum ÁTVR í sumar sökum skorts á gleri hjá framleiðanda Corona á fyrri hluta árs og fékkst hann ekki á tímabili í mörgum löndum. Um miðjan september kom fram í tilkynningu frá Vífilfelli, sem er umboðsaðili Corona hér á landi, að reglur ÁTVR komi í veg fyrir að bjórinn fái fulla dreifingu í áfengisverslunum því reglurnar kveði á um að þær vörur sem hafi verið ófáanlegar í ákveðinn tíma detti sjálfkrafa úr vöruúrvali Vínbúðanna. Af þeim sökum þurfi að sækja um reynslusölu á Corona á nýjan leik og fer bjórinn því í takmarkaða dreifingu þar til hann hefur unnið sinn sess hjá ÁTVR.
Bjórgerð og matvælaframleiðsla í sókn
Fram kemur í BrandZ-listanum að Corona er metið á átta milljarða Bandaríkjadali, jafnvirði tæpra 960 milljarða íslenskra króna. Það er 21% meira í dölum talið en fyrir ári. Til samanburðar jókst verðmæti bjórframleiðenda að meðaltali um 13% á milli ára. Verðmæti fyrirtækja í matvælageira og verslun jókst líka á milli ára.
Heildarverðmæti þeirra 50 vörumerkja sem koma fram á listanum öllum, þ.e. yfir 50 verðmætustu vörumerkin í Suður-Ameríku, nemur 129,2 milljörðum dala. Það er 4,5% minna en í fyrra.
Rannsóknir mikilvægar innan WPP
Það er bandaríska markaðsrannsóknarfyrirtækið Millward Brown sem tekur BrandZ-listann saman á hverju ári fyrir ýmis landssvæði. Millward Brown er hluti af fyrirtækjasamsteypunni WPP. Innan samsteypunnar er almannatengslafyrirtækið Cohn & Wolfe , þar með talið Cohn & Wolfe Íslandi.