Andaðu að þér fjölmenningunni. Heimurinn er ekki svo stór eftir allt
Heimurinn er síbreytilegur en stefnir í eina átt. Það skiptir engu máli hvort við erum heima hjá okkur, í vinnunni, á kaffihúsi eða uppi í sveit – umhverfi okkar tekur mið af ólíkum menningarheimum í einum allsherjar suðupotti mismunandi markmiða. Framsæknustu fyrirtækin þurfa að vita hvernig viðskiptavinurinn samsamar sig vörumerki fyrirtækisins – hvernig viðskiptavinurinn fæst til að segja: þau skilja mig.
Óþarft er að velta því fyrir sér hvort markaður sé til fyrir þær hugmyndir sem vilji er til að framkvæma. Cohn & Wolfe skilur að það er ekki til neinn neytendamarkaður. Fyrirtæki búa ekki til þarfir, þau svala þeim og þar af leiðandi getur Cohn & Wolfe hjálpað fyrirtæki þínu við að búa til nýjan markað á traustum grunni.
Við kunnum að meta þá menningu sem tilvera okkar er grundvölluð á. Við skiljum líka hver samvirknin er í ólíkum menningarheimum, og hvernig megi draga hana fram tilteknu málefni til framdráttar. Við málum ekki alla með sama penslinum og þess vegna getur viðskiptavinur Cohn & Wolfe verið viss um að njóta hreinskilni, áreiðanleika og innsæis í ráðgjöf okkar.
Cohn & Wolfe er alþjóðlegt fyrirtæki og því njóta viðskiptavinir okkar víðtæks nets ólíkra samstarfsaðila okkar innan WPP-samsteypunnar. Það skiptir litlu hvort áhrifasvæði starfseminnar er í Evrópu, Norður-Ameríku eða Asíu, Cohn & Wolfe getur ávallt boðið ómetanlega faglega ráðgjöf grundvallaðrar á viðamikilli þekkingu á staðháttum.
Við erum hér til að hjálpa þér að ná lengra með þitt vörumerki, sama hvar og með viðeigandi hætti. Þannig gerum við heiminn minni og aðgengilegri.