Burson Cohn & Wolfe hlaut tvenn Global SABER verðlaun
útgefið

Burson Cohn & Wolfe (BCW) fagnaði við hátíðlega athöfn í Washington D.C. tvennum Global SABER verðlaunum á PROvoke Global Summit 2023. Fyrirtækið var heiðrað fyrir störf sín með Carlsberg og Honest Egg Co.

Global SABER verðlaunin eru veitt 40 bestu almannatengslaherferðunum á heimsvísu af PROvoke Media.

„Sunken Bar“ með Carlsberg
Carlsberg vildi vekja athygli á hættunni sem fylgir því að stýra bát undir áhrifum áfengis, þar sem sex af hverjum tíu sem deyja í bátaslysum í Svíþjóð eru undir áhrifum. Hugmyndin var að búa til öfluga áminningu með því að opna nýjan bar á hafsbotni, þar sem banvæn slys í slíkum bátsferðum lenda. Niðursokkinn bar var ögrandi og eftirtektarverð leið til að koma skilaboðum áleiðis. Þessi leið náði vel til almennings sem þjónaði lausninni: Áfengislaus bjór frá Carlsberg. Skilaboðin voru m.a. birt við hlið aðalbryggjunnar í „mekka“ bátamenningarinnar í Svíþjóð, Smögen, þar sem vörumerki Carlsberg náði til markhóps í viðeigandi samhengi.

Sunken Bar herferðin varð tákn þess að halda sig frá áfengi á sjó. Herferðin dreifðist um Svíþjóð en einnig á heimsvísu, bæði í gegnum hefðbundna fjölmiðla og samfélagsmiðla. Þetta stuðlaði að áunninni útbreiðslu upp á 31 milljón birtinga, auk 15,5 milljón birtinga á samfélagsmiðlum.

Óhætt er að segja að herferðin skilaði árangri sumarið 2022 því að sögn sænsku lögreglunnar fækkaði tilkynningum um ölvun á sjó um 43%.

Þá mældist orðspor Carlsberg vörumerkisins hærra og á samkeppnismarkaði jókst markaðshlutdeild Carlsberg á áfengislausum bjór um 1,6% þar sem þriðji hver seldur óáfengur bjór var Carlsberg.


„FitChix“ með Honest Egg Co
BCW leiddi almannatengslaherferð til að koma á markað fyrsta líkamsræktartækinu sem er sérstaklega hannað fyrir hænur. Herferðin sýndi Áströlum hversu frjálsar og heilbrigðar Honest Eggs Co. hænur eru í raun og veru. Verkefnið fól í sér að búa til vistfræðilegan og hænuvænan skrefamælir sem hefur jákvæð áhrif á daglegt líf hænsna. Margar frumgerðir voru hannaðar til að ná að greina virkni hænsna á réttan hátt og þegar skrefamælirinn var fullhannaður voru skref hænsna prentuð á eggin sem Ástralir kaupa í matvöruverslunum. 

Á eins mánaðar tímabili skiluðu áunnir fjölmiðlaþættir FitChix herferðarinnar 173 fjölmiðlaumfjöllunum sem náðu yfir 46,8 milljónir birtingar í Ástralíu. Honest Eggs Co. tryggði sér 222% söluaukningu og varan varð víða uppseld vegna aukins áhuga á að kaupa öskjur með eggjum frá Honest Eggs Co.

„Árangursrík vinna hefst með hugrekki viðskiptavinar sem er tilbúinn að taka sénsinn á stórkostlegri hugmynd og Global SABER verðlaunin eru sönnun þess efnis. Sérstaklega þar sem þessar tvær herferðir hófust með ögrandi hugmyndum sem leyfðu öflugri frásagnarlist að byggja upp orðspor, auka sölu og jafnvel bjarga mannslífum. Það er því sannur heiður að deila þessum verðlaunum með hugrökkum viðskiptavinum okkar og framúrskarandi teymum innan BCW.“ – Corey duBrowa, Global CEO, BCW. 


Lestu meira á vef Burson Cohn & Wolfe.

 

Facebook
Twitter
LinkedIn

Nýjast á Úlfaslóð

Hver erum við? Þetta er það sem við getum gert fyrir þig.

Cohn & Wolfe á Íslandi er útibú frá Burson Cohn & Wolfe (BCW) sem er meðal stærstu alþjóðafyrirtækja á sviði samhæfðra boðskipta. Hjá BCW starfa um 4000 manns í yfir 70 löndum á stærstu markaðssvæðum heims. Samsteypunni er stýrt frá höfuðstöðvunum í New York og hefur útibúið á Íslandi löngum notið samvirkninnar innan samsteypunnar. Það

smelltu og lestu »

Burson Cohn & Wolfe hlaut tvenn Global SABER verðlaun

Burson Cohn & Wolfe (BCW) fagnaði við hátíðlega athöfn í Washington D.C. tvennum Global SABER verðlaunum á PROvoke Global Summit 2023. Fyrirtækið var heiðrað fyrir störf sín með Carlsberg og Honest Egg Co. Global SABER verðlaunin eru veitt 40 bestu almannatengslaherferðunum á heimsvísu af PROvoke Media. „Sunken Bar“ með CarlsbergCarlsberg vildi vekja athygli á hættunni

smelltu og lestu »

Byggjum borg tvö – Sel­foss eða Akur­eyri fyrst?

Ekkert er fegurra en hugmynd hvers tími er komin: Akureyrarborg eða? Tilgangur hugmyndarinnar um Akureyrarborg er að draga vald norður og styrkja umboð Akureyringa til að nota það. Önnur borg skapar vonandi valdajafnvægi í landinu sem eykur velferð landsbyggðarinnar. Það verður erfitt að ganga fram hjá borg tvö. Forsendurnar liggja í því sem landshlutinn vill

smelltu og lestu »