Byggjum borg tvö – Sel­foss eða Akur­eyri fyrst?
útgefið

Ekkert er fegurra en hugmynd hvers tími er komin: Akureyrarborg eða? Tilgangur hugmyndarinnar um Akureyrarborg er að draga vald norður og styrkja umboð Akureyringa til að nota það. Önnur borg skapar vonandi valdajafnvægi í landinu sem eykur velferð landsbyggðarinnar. Það verður erfitt að ganga fram hjá borg tvö.

Forsendurnar liggja í því sem landshlutinn vill hafa en hefur ekki. Og því sem hann ætti að hafa en hefur ekki. Norðlendingar, Akureyringar, vilja bera ábyrgð á nærumhverfi sínu í smáu sem stóru en hefur skort vald og umboð til þess. Framþróunin er hæg.

Forsendur og tilgangur nægir ekki til að byggja Akureyrarborg. Framþróun hugmyndarinnar fellst í aðferðafræði sem dregur sjálfkrafa að sér fjármagn og fólk – vegna vöntunar á lausnum annars staðar, áður en öðrum dettur það sama í hug – til dæmis Selfyssingum. Aðferðin er að vera fyrst til að leysa stærsta vandamál samfélagsins – sem höfuðborgarsvæðinu hefur mistekist að leysa; byggja íbúðarhúsnæði. Hratt.

Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar (AFE), í samstarfi við sérfræðinga að sunnan, ákvað árið 2019, að stíga fast og ákveðið til jarðar og framkvæmdi með sóma aðgerðina „rafmagn örugglega norður“ og naut áhrifa frá vegferð Samtaka Iðnaðarins sem var á sama tíma í sömu erindagjörðum. Hugmyndin að Akureyrarborg kviknar í þessu viðamikla verkefni hagsmunagæslu fyrir Norðurland. Seinna kom í ljós að sama hugmynd hafði verið kynnt árið 2012. Fáir hlustuðu þá. Sjálfboðavinnu sérfræðinga í hagsmunagæslu fyrir borgina í norðri lauk vorið 2023. Hvati þeirrar vinnu hefur þó aðeins styrkst enda enn meiri skortur á húsnæði og fyrirhyggju varðandi þarfir íbúanna í dag en fyrir nokkrum árum.

AFE kynnti hugmyndina árið 2019 fyrir stjórnmálafólki, embættismönnum og öðrum sem hafa unnið hægt og sígandi með hugmyndina. Ný sóknarstefna fyrir landshlutann er í bígerð. Vonandi verður sóknin byggð á forsendum og tilgangi nýju borgarinnar eins og AFE taldi skynsamlegt á sínum tíma. Án stefnufestu er hætta á að lítið verði úr skattfé því sem úthlutað var í borgarverkefnið.

Verkefnið hefur tekið of langan tíma sem kostar skattborgarinn peninga. Forseti bæjarstjórnar Akureyrar hefði getað stígið á pall árið 2019 eða 2012 og tilkynnt að bærinn væri borg. Þá hefðu fleiri hlustað og eitthvað gerst, og sérfræðingarnir að sunnan ekki þurft að vinna í sjálfboðavinnu í hagsmunagæslu fyrir borgina í norðri fram til 2023.

Hvaða landshluti verður fyrstur til að byggja nægjanlegt íbúðarhúsnæði sem dregur til sín fjármagn og fólk? Verður það Akureyrarborg eða Selfossborg?

Guðjón Heiðar Pálsson, formaður hugmyndarinnar um aðra borg.

Greinin birtist fyrst á Vísir 4. mars 2024 18:01

 

Facebook
Twitter
LinkedIn

Nýjast á Úlfaslóð

Hver erum við? Þetta er það sem við getum gert fyrir þig.

Cohn & Wolfe á Íslandi er útibú frá Burson Cohn & Wolfe (BCW) sem er meðal stærstu alþjóðafyrirtækja á sviði samhæfðra boðskipta. Hjá BCW starfa um 4000 manns í yfir 70 löndum á stærstu markaðssvæðum heims. Samsteypunni er stýrt frá höfuðstöðvunum í New York og hefur útibúið á Íslandi löngum notið samvirkninnar innan samsteypunnar. Það

smelltu og lestu »

Burson Cohn & Wolfe hlaut tvenn Global SABER verðlaun

Burson Cohn & Wolfe (BCW) fagnaði við hátíðlega athöfn í Washington D.C. tvennum Global SABER verðlaunum á PROvoke Global Summit 2023. Fyrirtækið var heiðrað fyrir störf sín með Carlsberg og Honest Egg Co. Global SABER verðlaunin eru veitt 40 bestu almannatengslaherferðunum á heimsvísu af PROvoke Media. „Sunken Bar“ með CarlsbergCarlsberg vildi vekja athygli á hættunni

smelltu og lestu »

Byggjum borg tvö – Sel­foss eða Akur­eyri fyrst?

Ekkert er fegurra en hugmynd hvers tími er komin: Akureyrarborg eða? Tilgangur hugmyndarinnar um Akureyrarborg er að draga vald norður og styrkja umboð Akureyringa til að nota það. Önnur borg skapar vonandi valdajafnvægi í landinu sem eykur velferð landsbyggðarinnar. Það verður erfitt að ganga fram hjá borg tvö. Forsendurnar liggja í því sem landshlutinn vill

smelltu og lestu »