Veist þú hver verðmætustu vörumerkin í Kína eru? Veistu hvernig það getur gagnast þér og rekstri þínum að vita það? Kína er næst stærsta hagkerfi heims og því borgar sig að fylgjast með því sem er að gerast þar.
WPP, móðurfyrirtæki Cohn & Wolfe, hefur gefið út skýrslu í samvinnu við MillwardBrown, systurfyrirtæki okkar, undir nafninu Brandz100. Skýrslan gefur þér tækifæri til að kynnast vörumerkjunum og hvar þau standa í samanburði við önnur. Veist þú hvað verðmætasta vörumerki Kína, Tencent, stendur fyrir? Hefur þú efni á að vita það ekki?
Blikur á lofti
Greinendur hafa haft af því nokkrar áhyggjur að hægt hafi á efnahag Kína en samkvæmt Brandz100 skýrslunni hefur verðmæti 100 verðmætustu vörumerkjanna þó aukist um að jafnaði 13%. En þar er ekki öll sagan sögð, því sum hafa hækkað mun meira í virði á meðan önnur hafa lækkað talsvert. Þú getur séð allar þessar upplýsingar í skýrslunni og fengið góða greiningu á stöðunni.
Heimurinn er að minnka
Við erum sífellt minnt á að heimurinn er alltaf að verða minni. Markaðir sofa aldrei og það sem gerist í dag í Kína hefur áhrif á morgun í Evrópu. Þess vegna skiptir öllu máli að fylgjast vel með. Vita hvað snýr upp og hvað niður og hver þróunin er. Brandz100 skýrslan er mikilvægt verkfæri fyrir þá sem vilja fleiri vopn í vopnabúrið. Skýrsluna og mjög mikið aukaefni er að finna hér. Láttu hana ekki fara framhjá þér.