Skipuleggjendur, styrktaraðilar og ríkisstjórn Rússlands hafa öll orðið fyrir barðinu á neikvæðum fyrirsögnum heimspressunnar í kjölfar vetrarólympíuleikanna sem hefjast í Sochi 7. febrúar næstkomandi.
Hluti af skýringunni eru sérkennileg viðhorf rússneskra stjórnvalda í garð samkynhneigðra, mótmælenda auk skýlausra mannréttindabrota þeirra.
Eins og svo oft áður þegar kastljós fjölmiðla beinist að ákveðnum löndum í tengslum við stórviðburði á íþróttasviðinu er mikilvægt að undirbúningur við framkvæmdir og aðbúnaður starfsmanna sé viðunandi.
Nýlegar fréttir af slysum og dauðsföllum í Brasilíu í tengslum við heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fram fer í sumar varpa óneitanlega dökku ljósi á viðburðinn sem fram fer í skugga slysa og dauðsfalla.
Fregnir berast af því að ráðamenn og þjóðhöfðingjar hyggist sniðganga vetrarólympíuleikana í Rússlandi til að mótmæla mannréttindabrotum og margskonar yfirgangi þarlendra stjórnvalda.
Hlutverk þeirra sem koma að almannatengslum og kynningu ólympíuleikanna er því vandasamt. Stöðugt þarf að slökkva elda, stöðugt þarf að bregðast við neikvæðri umfjöllun og hemja umræðuna sem snýst um allt annað en það sem hún á vitanlega að gera: leikana sjálfa og frammistöðu þátttakenda.
Það hjálpar vitanlega ekki að hafa yfirlýsingaglaða ráðamenn eins og borgarstjóra Sochi sem fullyrðir að engir samkynhneigðir finnist í borginni. Slíkt umtal er vitanlega til þess fallið að drekkja því sem þó heppnast vel.
Og þegar stjórnvöld reyna að auka jákvæða ímynd sína með því að sleppa úr haldi tveim liðsmönnum pönksveitarinnar Pussy Riot og Grænfriðungum er það túlkað sem yfirklór og sýndarleikur.
Þetta er meðal þeirra áskorana sem almannatengsl byggja á. Þetta er meðal þess sem fagráðgjafar Cohn & Wolfe fást við daglega með aðgangi að víðtæku tengslaneti dótturfyrirtækja samsteypunnar.
Kynntu þér fagráðgjöf Cohn & Wolfe og verndaðu þannig þá vöru eða þjónustu sem þú og fyrirtækið þitt býður.