Starfsframi
útgefið

Vinnustaður fyrir öðruvísi hugsandi

Hvernig er að vinna hjá Cohn & Wolfe? Það hefur sjaldan verið eins spennandi og nú. Þekkingarnetið stækkaði við sameiningu GCI Group og Cohn & Wolfe. Við erum ennþá fleiri, skemmtilegri, reyndari og miklu gáfaðri. Sem sagt: hæfari … á alþjóðavísu. Nú erum við í Reykjavík í sambandi við fleiri sérfræðinga og fleiri í sambandi við okkur…vanti eitthvað sem við höfum en þeir ekki – sem gerist oftar en þig grunar!

Við erum sérfræðingar. Cohn & Wolfe ráðgjöfin er varan*. Varan er byggð á aðferðarfræði samhæfðrar boðmiðlunar. Miðlunin spannar öll svið mannlegra samskipta. Frá stefnumótun til aðgerða.

Andrúmsloftið hjá Cohn & Wolfe er jafnþungt og frelsið til að hugsa. Hugsa öðruvísi. Við erum í vinnu hjá viðskiptavinum okkar. Við vinnum að metnaðarfullum verkefnum og stefnum undantekningarlaust að árangri sem telst framúrskarandi. Við vinnum ekki fyrir hvern sem er.

Því má svo bæta við að við erum í hópi þeirra bestu, frumlegustu og framsæknustu í faginu. Hér heima sem annars staðar. Ef þú ert öðruvísi hugsandi, þá áttu góða möguleika hjá okkur.

Sendu okkur ferilskrá þína. Segðu okkur að þú sért alþjóðlega hugsandi. Segðu okkur að þú sért þjóðlega hugsandi. Segðu okkur að þú sért samvirkur. Segðu okkur að þú sért sigurvegari. Segðu okkur að þú sért öðruvísi hugsandi.

*Cohn & Wolfe ráðgjöfin fjallar venjulega um að skilgreina, skýra orsakir, benda á afleiðingar, skapa skilning, segja fyrir um árangur og leggja fram tillögur um aðgerðir til úrbóta.

Sendu okkur umsókn og upplýsingar um þig á netfangið verksvit@cohnwolfe.is

Facebook
Twitter
LinkedIn

Nýjast á Úlfaslóð

Hver erum við? Þetta er það sem við getum gert fyrir þig.

Cohn & Wolfe á Íslandi er útibú frá Burson Cohn & Wolfe (BCW) sem er meðal stærstu alþjóðafyrirtækja á sviði samhæfðra boðskipta. Hjá BCW starfa um 4000 manns í yfir 70 löndum á stærstu markaðssvæðum heims. Samsteypunni er stýrt frá höfuðstöðvunum í New York og hefur útibúið á Íslandi löngum notið samvirkninnar innan samsteypunnar. Það

smelltu og lestu »

Burson Cohn & Wolfe hlaut tvenn Global SABER verðlaun

Burson Cohn & Wolfe (BCW) fagnaði við hátíðlega athöfn í Washington D.C. tvennum Global SABER verðlaunum á PROvoke Global Summit 2023. Fyrirtækið var heiðrað fyrir störf sín með Carlsberg og Honest Egg Co. Global SABER verðlaunin eru veitt 40 bestu almannatengslaherferðunum á heimsvísu af PROvoke Media. „Sunken Bar“ með CarlsbergCarlsberg vildi vekja athygli á hættunni

smelltu og lestu »

Byggjum borg tvö – Sel­foss eða Akur­eyri fyrst?

Ekkert er fegurra en hugmynd hvers tími er komin: Akureyrarborg eða? Tilgangur hugmyndarinnar um Akureyrarborg er að draga vald norður og styrkja umboð Akureyringa til að nota það. Önnur borg skapar vonandi valdajafnvægi í landinu sem eykur velferð landsbyggðarinnar. Það verður erfitt að ganga fram hjá borg tvö. Forsendurnar liggja í því sem landshlutinn vill

smelltu og lestu »