Tíu ár liðin frá stofnun Facebook
útgefið

Nú eru 10 ár liðin frá því Facebook var stofnað af Mark Zuckerberg ásamt nokkrum skólafélögum við Harvard-háskólann til að auðvelda samskipti þeirra.

Það sem upphaflega átti að tengja saman nokkra skólafélaga vatt heldur betur upp á sig. Í lok janúar 2014 voru notendur síðunnar ríflega 1200 milljónir og félagið metið á 134 milljarða bandaríkjadala.

Það er óhætt að segja að enginn annar hlutur síðasta áratugar hafi haft jafnmikil áhrif á líf jarðarbúa og samskiptasíðan Facebook.

Facebook er langvinsælast samfélagsmiðlanna. Allir eru á Facebook. Börn, foreldrar og afi og amma. Fólk fer í meðferð vegna Facebook fíknar, líkt og fólk fer í áfengis- og vímuefnameðferð.

Slík eru áhrif Facebook orðin á líf okkar. Í vikunni hefur þessa afmælis verið minnst í fjölmiðlum þar sem menn hafa fjallað um hve gríðarleg áhrif þessi miðill hefur haft á líf okkar þar.

Við erum orðnir útsendingastjórar í eigin lífi þar sem við deilum uppvexti barna, nýjum og spennandi uppskriftum, ferðalögum, og já öllu milli himins og jarðar.

Við erum orðnir að rithöfundum í eigin lífi sem við deilum í auknum mæli með vinum og kunningjum og í raun hverjum sem hafa vill og kærir sig um.

Sumir hafa haldið því fram að ungt fólk sé að flýja Facebook og velji aðra miðla á borð við Instagram og Twitter fyrir nethegðun sína. Sumir hafa einnig spáð fyrir um endalok miðilsins og verður fróðlegt að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir þennann miðil sem hefur öðru fremur haft mest áhrif á líf fólks undanfarin tíu ár.

Facebook
Twitter
LinkedIn

Nýjast á Úlfaslóð

Handaband