Vinnustaður fyrir öðruvísi hugsandi
Hvernig er að vinna hjá Cohn & Wolfe? Það hefur sjaldan verið eins spennandi og nú. Þekkingarnetið stækkaði við sameiningu GCI Group og Cohn & Wolfe. Við erum ennþá fleiri, skemmtilegri, reyndari og miklu gáfaðri. Sem sagt: hæfari … á alþjóðavísu. Nú erum við í Reykjavík í sambandi við fleiri sérfræðinga og fleiri í sambandi við okkur…vanti eitthvað sem við höfum en þeir ekki – sem gerist oftar en þig grunar!
Við erum sérfræðingar. Cohn & Wolfe ráðgjöfin er varan*. Varan er byggð á aðferðarfræði samhæfðrar boðmiðlunar. Miðlunin spannar öll svið mannlegra samskipta. Frá stefnumótun til aðgerða.
Andrúmsloftið hjá Cohn & Wolfe er jafnþungt og frelsið til að hugsa. Hugsa öðruvísi. Við erum í vinnu hjá viðskiptavinum okkar. Við vinnum að metnaðarfullum verkefnum og stefnum undantekningarlaust að árangri sem telst framúrskarandi. Við vinnum ekki fyrir hvern sem er.
Því má svo bæta við að við erum í hópi þeirra bestu, frumlegustu og framsæknustu í faginu. Hér heima sem annars staðar. Ef þú ert öðruvísi hugsandi, þá áttu góða möguleika hjá okkur.
Sendu okkur ferilskrá þína. Segðu okkur að þú sért alþjóðlega hugsandi. Segðu okkur að þú sért þjóðlega hugsandi. Segðu okkur að þú sért samvirkur. Segðu okkur að þú sért sigurvegari. Segðu okkur að þú sért öðruvísi hugsandi.
*Cohn & Wolfe ráðgjöfin fjallar venjulega um að skilgreina, skýra orsakir, benda á afleiðingar, skapa skilning, segja fyrir um árangur og leggja fram tillögur um aðgerðir til úrbóta.
Sendu okkur umsókn og upplýsingar um þig á netfangið verksvit@cohnwolfe.is