Bjórtegundir eru ofarlega á blaði yfir tíu verðmætustu vörumerkin í Mið- og Suður-Ameríku um þessar mundir, samkvæmt nýbirtum Brandz-lista Millward Brown. Af vörumerkjunum tíu verma bjórtegundir fimm sæti en fjarskipta-, fjármála- og smásölufyrirtæki hin fimm.
Skál!
Bjórinn Skol frá Brasilíu er nú um stundir verðmætasta vörumerkið í Mið- og Suður-Ameríku en hann er metinn á 8,5 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði eitt þúsund milljarða íslenskra króna. Það er álíka mikið og helmingurinn af landsframleiðslu Íslands á síðasta ári.
Það voru bjórframleiðendur í Bretlandi, Kanada og Svíþjóð og Belgíu sem sameinuðust um gerð Skol árið 1964 en nafn hans vísar til skandinavíska orðsins skål. Framleiðslan hefur flakkað svolítið á milli fyrirtækja síðan þá en danski bjórrisinn Carlsberg á réttinn að vörumerkinu í dag.
Þetta er fyrsta skiptið sem bjórinn Skol kemst í toppsætið á Brandz-listanum. Athyglisvert er að verðmæti vörumerkisins jókst um hvorki meira né minna en 20% á milli ára og það þrátt fyrir að hægt hafi á hagvexti í Mið- og Suður-Ameríku.
Önnur vörumerki á topp tíu lista Brandz í Mið- og Suður-Ameríku eru bjórmerkið Corona, sem lengi hefur notið vinsælda hér á landi, fjarskiptafyrirtækin Telcel og Televisa, fjármálafyrirtækin Bradesco og Itau og smásölufyrirtækið Falabela. Þrjár aðrar bjórtegundir eru á Brandz-listanum, en þær eru lítt þekktar hér á landi. Athygli vekur að á sama tíma og verðmæti vörumerkja á Brandz-listanum eykst nokkuð á milli ára dróst það saman um 23% hjá Falabela.
Rannsóknir mikilvægar innan WPP
Það er bandaríska markaðsrannsóknarfyrirtækið Millward Brown sem tekur BrandZ-listann saman á hverju ári fyrir ýmis landsvæði. Millward Brown er hluti af fyrirtækjasamsteypunni WPP. Innan samsteypunnar er almannatengslafyrirtækið Cohn & Wolfe, þar með talið Cohn & Wolfe Íslandi.