Ekki sýna þig á naríunum
útgefið

Reglubundið tilkynna margir almannatenglar, ráðgjafar sem aðrir, að forsvarsmenn eigi að segja satt í samskiptum við fjölmiðla. Skilyrðislaust. Þeir segja að sannleikurinn sé sagna bestur.

Málefnið er mikilvægt þar sem hugtakið er stór hluti af hversdagsleik okkar og með áhrifaríkustu grundvallarhugtökum sem maðurinn býr yfir. Umræða um sannleikann er eilíf og ótæmandi. Þess vegna krefst umræðan nákvæmni. Einnig þegar rætt er um einstaka þætti.

Almannatenglar, ráðgjafar sem aðrir, ráðleggja forsvarsmönnum að koma til dyranna eins og þeir eru klæddir.

Er það rétt? Erum við ekki alinn upp við það að klæða okkur og koma svo til dyra? Hver eru þau áætluðu markmið sem liggja að baka krafna um það að fólk eigi skilyrðislaust að segja allt sem satt er?

Fáir vilja hlusta á þá sem koma naktir eða á naríunum til dyra. Þá er nú betra að klæða sig.

Á sama hátt og fólk klæðir sig áður en það fer til dyra er mikilvægt að búa sig undir að segja satt.

Fáðu sérfræðinga Cohn & Wolfe til að hjálpa þér í réttu fötin áður en þú opnar útidyrnar og ferð að segja satt.

Facebook
Twitter
LinkedIn

Nýjast á Úlfaslóð

Handaband