Hvað segir Martin Sorrel forstjóri WPP um skapandi tækni?
útgefið

Sir Martin Sorrel hefur verið forstjóri WPP, móðurfélags Cohn & Wolfe Íslandi, um langt skeið. Það var árið 1986 sem Martin  tók við stöðu forstjóra og skömmu síðar hóf hann að byggja upp það veldi sem WPP er í dag.

En hvað segir leiðtoginn um skapandi tækni og það umhverfi sem við finnum okkur í?

WPP byggir á ákveðinni hugmyndafræði og Martin Sorrel er maðurinn sem alltaf veitir smáatriðum athygli og veit nákvæmlega hvað er framundan á sviði boðskipta. Undanfarið hefur Martin einbeitt sér að nýmörkuðum, stafrænni þróun, gagnanýtingu og láréttri hugsun.

En Martin talar ávallt um efni og innihald líka. Margir eru farnir að leggja við hlustir þegar þetta stef er farið að verða kunnuglegt. Ástæðan er einföld. Hún er sú að eftir því sem miðlum fjölgar þá verður innihald mikilvægara. Þetta hefur sést hjá fyrirtækjum WPP um langt skeið. Á meðan aðrir byggja á útliti og formgerð með hugarfarið „mynd segir meira en 1000 orð“ þá byggja nútíma almannatengsl og boðskipti á áhugaverðu efni fyrst og fremst.

Fyrir skapandi tækni í geiranum hefur þessi vitneskja haft afgerandi áhrif undanfarin misseri. Áherslan á vel unnið efni – innihaldsríkt efni – eykst stanslaust. Formgerðin skiptir einfaldlega minna máli en innihaldið hjá fyrirtækjum undir hatti WPP. Vel unnið efni dreifir sér sjálft – lárétt – og plássið er ekki einu sinni keypt.

Annað sem Martin hefur reynt að breyta er það hvernig hugtakið skapandi er notað. Venjulega hefur verið samasemmerki á milli sköpunar og grafískra hönnuða eða hugmyndasmiða í auglýsingageiranum. En sköpunargáfan liggur ekki síður í því að kunna að útfæra áætlanir og fylgja þeim eftir. Langstærsti hluti vinnunnar snýst um aðferðafræði og hvernig henni er beitt. Fréttin sem birtist og hvaða mynd var valin er minnsti hluti vinnunnar. Skapandi tækni styður við þetta nýja hugarfar.

 

 

 

 

 

 

Facebook
Twitter
LinkedIn

Nýjast á Úlfaslóð

Hver erum við? Þetta er það sem við getum gert fyrir þig.

Cohn & Wolfe á Íslandi er útibú frá Burson Cohn & Wolfe (BCW) sem er meðal stærstu alþjóðafyrirtækja á sviði samhæfðra boðskipta. Hjá BCW starfa um 4000 manns í yfir 70 löndum á stærstu markaðssvæðum heims. Samsteypunni er stýrt frá höfuðstöðvunum í New York og hefur útibúið á Íslandi löngum notið samvirkninnar innan samsteypunnar. Það

smelltu og lestu »

Burson Cohn & Wolfe hlaut tvenn Global SABER verðlaun

Burson Cohn & Wolfe (BCW) fagnaði við hátíðlega athöfn í Washington D.C. tvennum Global SABER verðlaunum á PROvoke Global Summit 2023. Fyrirtækið var heiðrað fyrir störf sín með Carlsberg og Honest Egg Co. Global SABER verðlaunin eru veitt 40 bestu almannatengslaherferðunum á heimsvísu af PROvoke Media. „Sunken Bar“ með CarlsbergCarlsberg vildi vekja athygli á hættunni

smelltu og lestu »