Þrjú ráð til að sýna lesendum virðingu
útgefið

Einfalt. Þetta er orð sem gripið er til þegar eitthvað skortir. Einfalt kann að hljóma… einfalt, en það er síður en svo einfalt að skrifa eitthvað einfalt. Venjulega er gripið til þessa orðs þegar eitthvað skortir.

Það sem oftast skortir þegar gripið er til orða eins og “einfalt” er tími til að sinna almennilega því sem óskað er eftir, eða færni vantar til að greina hvað það er sem raunverulega þarf.

Hér eru þrjú góð ráð sem krefjast færni þess sem skrifar en þau sýna jafnframt lesandanum að hann ber ábyrgð á sjálfum sér og ef hann gerir sér grein fyrir því þá mun hann lesa alla leið til enda af áhuga.

1. Hugsaðu um hvaða áhrif þú vilt að móttakandi skilaboðanna verði fyrir. Hugsaðu svo um hvernig þú getur best náð þínum boðskap í gegn.

2. Skrifaðu hnitmiðað og af ástríðu. Reyndu svo að skera allt sem ekki er nauðsynlegt skilningnum frá textanum.

3. Einbeittu þér að kjarnaskilaboðunum og láttu það vera að útskýra röksemdarfærslur með mismunandi vinklum. Það er líklegra til að rugla skilaboðin.

Ef þér tekst að gera þetta ættir þú að hafa skýran texta sem gefur heilmikinn skilning umfram það sem raunverulega var sett á blað – líkt og ísjaki – þá er textinn miklu ríkari en hann lítur út fyrir að vera og lesandanum hefur verið sýnd tilhlýðileg virðing.

Facebook
Twitter
LinkedIn

Nýjast á Úlfaslóð

Hver erum við? Þetta er það sem við getum gert fyrir þig.

Cohn & Wolfe á Íslandi er útibú frá Burson Cohn & Wolfe (BCW) sem er meðal stærstu alþjóðafyrirtækja á sviði samhæfðra boðskipta. Hjá BCW starfa um 4000 manns í yfir 70 löndum á stærstu markaðssvæðum heims. Samsteypunni er stýrt frá höfuðstöðvunum í New York og hefur útibúið á Íslandi löngum notið samvirkninnar innan samsteypunnar. Það

smelltu og lestu »

Burson Cohn & Wolfe hlaut tvenn Global SABER verðlaun

Burson Cohn & Wolfe (BCW) fagnaði við hátíðlega athöfn í Washington D.C. tvennum Global SABER verðlaunum á PROvoke Global Summit 2023. Fyrirtækið var heiðrað fyrir störf sín með Carlsberg og Honest Egg Co. Global SABER verðlaunin eru veitt 40 bestu almannatengslaherferðunum á heimsvísu af PROvoke Media. „Sunken Bar“ með CarlsbergCarlsberg vildi vekja athygli á hættunni

smelltu og lestu »

Byggjum borg tvö – Sel­foss eða Akur­eyri fyrst?

Ekkert er fegurra en hugmynd hvers tími er komin: Akureyrarborg eða? Tilgangur hugmyndarinnar um Akureyrarborg er að draga vald norður og styrkja umboð Akureyringa til að nota það. Önnur borg skapar vonandi valdajafnvægi í landinu sem eykur velferð landsbyggðarinnar. Það verður erfitt að ganga fram hjá borg tvö. Forsendurnar liggja í því sem landshlutinn vill

smelltu og lestu »