Leiðtogahlutverk
útgefið

Virðisaukann er að finna í réttum upplýsingum, réttri ráðgjöf 

Til að ná árangri í nútímasamfélagi er nauðsynlegt að hafa aðgang að fólki sem hefur skilning á fyrirtækinu þínu og samfélaginu sem það þjónar. Þú þarf að hafa aðgang að samstarfsaðila sem getur greint kjarnann frá hisminu og rutt nýjar og betri brautir fyrir þig og fyrirtækið þitt.

Eins og allir starfsmenn fyrirtækisins myndar hópur af vel gefnum, þrautseigum og skemmtilegum einstaklingum framkvæmdastjórn Cohn & Wolfe. Þeir eru með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu og leggja af einhug mikinn metnað í starf sitt fyrir hönd viðskiptavina okkar.

Leiðandi hugsun (e. Thought Leadership) heldur utan um útgefin verk, stefnumótun og markmið, álitsgerðir og hagnýtar athuganir ásamt öðrum leiðandi rannsóknum á okkar vegum og sýnir hvaða augum við lítum skapandi boðmiðlun og árangurinn af henni.

Notagildið

Fagmennskan verður aðeins til við samhljóm loforðs um aðgengileika, áreiðanleika og notagildi. Sérfræðiráðgjöf Cohn & Wolfe fjallar venjulega um að skilgreina, skýra orsakir, benda á afleiðingar, skapa skilning, segja fyrir um árangur og leggja fram tillögur um aðgerðir til úrbóta.

Það sem fólk heyrir gleymir það
Þa sem fólk sér minnist það
Það sem fólk gerir skilur það
Það sem fólk skilur gleypir það

Gildin

Gildi Cohn & Wolfe Íslandi eru þrjú: virðing, tryggð og umhyggja. Gildin eru hækjur okkar í mannalegum samskiptum. Við erum viss um að gildin hjálpa okkur, og því fólki sem við eigum samskipti við, til að finna og þróa með okkur þá fjölmörgu eiginleika sem skapa traust. Við trúum því að traustið sé sá grunnur sem til þarf svo góð og hagkvæm viðskipti geti átt sér stað en slíkt getur aðeins orðið að tilstuðlan samvirkni.

Nálgunin

Cohn & Wolfe Íslandi er „kreatíft verkfræðifyrirtæki“ – aðferðarfræðileg sérfræðiaðstoð á sviði boðskipta, boðmiðlunar. Fyrirtækið leggur áherslu á faglega og kerfisbundna nálgun við þau verkefni sem fyrirtækið tekur sér fyrir hendur. Við trúum því að aðeins með aðferðarfræðilegri og kerfisbundinni nálgun sé hægt að mæla árangur – meta ávöxtun þeirra fjármuna sem ákvarðar markmiðin, eða öfugt.

Ábyrgðin

Cohn & Wolfe ber ábyrgð á stefnumótun þeirra skilaboða er lúta að  almannatengslum viðskiptavina stofunnar. Leitar hagkvæmari og virkari boðkerfis, boðrása og boðleiða sem gagnast viðskiptavinum fyrirtækisins hverju sinni. Markmiðið er að fækka misvísandi skilaboðum í heildrænu skilaboðakerfi viðskiptavinarins. Litið er svo á að „viðhorfsbreyting í jákvæða átt“ sé hið endanlega markmið stefnumótandi skilaboða. Heildarsýn er í heiðri höfð hvort sem hún birtist í hefðbundnum ógreiddum miðlum (PR aðferðum, utan- sem innanhúss) eða á öðrum vettvangi greiddrar miðlunar (t.d. auglýsingum). Með fækkun misvísandi skilaboða og fjölnýtingu efnis er rudd leið til hagræðingar og meiri virkni við skilaboðagerð viðskiptavina Cohn & Wolfe.

Cohn & Wolfe leggur áherslu á að starfsmenn fyrirtækisins og viðskiptavinarins kynni sér stefnur og markmið, verklag og aðferðafræði hvor annars og afla sér þannig þeirrar þekkingar sem leiðir til frekari skilvirkni þessa samnings og samstarfsins í heild.

Facebook
Twitter
LinkedIn

Nýjast á Úlfaslóð

Hver erum við? Þetta er það sem við getum gert fyrir þig.

Cohn & Wolfe á Íslandi er útibú frá Burson Cohn & Wolfe (BCW) sem er meðal stærstu alþjóðafyrirtækja á sviði samhæfðra boðskipta. Hjá BCW starfa um 4000 manns í yfir 70 löndum á stærstu markaðssvæðum heims. Samsteypunni er stýrt frá höfuðstöðvunum í New York og hefur útibúið á Íslandi löngum notið samvirkninnar innan samsteypunnar. Það

smelltu og lestu »

Burson Cohn & Wolfe hlaut tvenn Global SABER verðlaun

Burson Cohn & Wolfe (BCW) fagnaði við hátíðlega athöfn í Washington D.C. tvennum Global SABER verðlaunum á PROvoke Global Summit 2023. Fyrirtækið var heiðrað fyrir störf sín með Carlsberg og Honest Egg Co. Global SABER verðlaunin eru veitt 40 bestu almannatengslaherferðunum á heimsvísu af PROvoke Media. „Sunken Bar“ með CarlsbergCarlsberg vildi vekja athygli á hættunni

smelltu og lestu »

Byggjum borg tvö – Sel­foss eða Akur­eyri fyrst?

Ekkert er fegurra en hugmynd hvers tími er komin: Akureyrarborg eða? Tilgangur hugmyndarinnar um Akureyrarborg er að draga vald norður og styrkja umboð Akureyringa til að nota það. Önnur borg skapar vonandi valdajafnvægi í landinu sem eykur velferð landsbyggðarinnar. Það verður erfitt að ganga fram hjá borg tvö. Forsendurnar liggja í því sem landshlutinn vill

smelltu og lestu »